Brunch

Um okkur


Hnoss Bistro er staðsettur á jarðhæð Hörpu tónleika- og ráðstefnuhúss í hjarta Reykjavíkur. Hnoss býður upp á fyrsta flokks hráefni, fjölbreyttan matseðil og hlýlega og faglega þjónustu.


Opið er alla daga frá kl. 11-18. Á virkum dögum er boðið upp á hádegisseðil frá kl. 11:30-14:00 en hádegishlaðborð (brunch) um helgar. Hlaðborðið hentar einnig fyrir fjölskyldur og börn.


Þegar stærri viðburðir eru í húsi er opið á kvöldin í mat og drykki auk þess sem hægt er að njóta drykkja eftir tónleika.


Við tökum fagnandi á móti hópum í happy hour, hádegismat eða kvöldverð alla daga vikunnar. Fyrirspurnir fyrir hópabókanir sendist á [email protected].